Auglýsing - Forval byggingarverktakar

18.Desember 2011  |   Brynjar Daníelsson

Forval - byggingaverktakar

Verkfræðistofa Þráinn og Benedikt, fyrir hönd Happdrættis Háskóla Íslands, óskar eftir áhugasömum aðalverktökum til að taka þátt í forvali vegna útboðs á endurinnréttingu þriggja hæða í húsnæði Happdrættisins að Tjarnargötu 4 í Reykjavík. Í forvali verða hæfni og reynsla af fyrri verkum verktaka metin.

Skilyrt er að verktaki geti tekið að sér alla verkþætti og hafi reynslu af aðalverktöku innréttinga verkefna af stærðargráðunni 500-1000 m2.

Áhugasamir verktakar panti forvalsgögn á netfanginu benedikt@verkfraedistofa.is og gefi upp nafn fyrirtækis og upplýsingar um tengilið. Gögn verða send út á tölvutæku formi frá og með mánudeginum 19. desember 2011.

Forvalsgögnum skal skilað útfylltum á sama netfang eigi síðar en kl. 14:00 þann 5. janúar 2012.